Virðing

Skráð þann 7. maí 2010 kl. 11:23
Í samverstundum í dag var komið að því að opna síðasta krónublað.
Það var lífsgildið virðing og æfum við okkur nú markvisst fram að sumarfríi í því góða lífsgildi.
Að sýna virðingu felur í sér sjálfsvirðingu.
Virðing endurspeglast í þeirri kurteisi sem við sínum hvert öðru, öllu okkar tali og framkomu.
Virðing er einnig það að virða reglur heima, í skólanum og annars staðar.
Virðing býður upp á lýðræðisleg vinnubrögð þar sem allir geta tjáð skoðanir sínar.




Korpukot | Fossaleyni 12 | 112 Reykjavík | Sími 586 1400 | Sími skrifstofu 577 1900