Sveitaferðin

Skráð þann 1. júní 2010 kl. 15:09
Við minnum á fjölskylduferðina í sveitina á sunnudaginn næsta. Við heimsækjum bæinn Grjóteyri í Kjós.
Þar skoðum við dýrin og leikum okkur saman.

Foreldrafélagið býður upp á grillaðar pylsur og við fáum mjólk og kaffi í sveitinni. Höfum gaman og njótum dagsins saman í sveitinni.

 

Þeir sem fara með rútu athugið !

Mæting er hér í Korpukot 11:45

Rúta leggur af stað stundvíslega kl. 12

 

Vinsamlega leggið ekki bílum ykkar hjá heildverslun J.S. Gunnarsson eða Íslensku Kristkirkjunni þar sem viðburðir geta verið í gangi á meðan við erum í sveitinni.





Korpukot | Fossaleyni 12 | 112 Reykjavík | Sími 586 1400 | Sími skrifstofu 577 1900