Slökkviliðið í heimsókn til elstu barnanna

Skráð þann 5. október 2011 kl. 14:13
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Korpukot eru í samstarfi um brunavarnir í skólanum. Gerður var samningur við elstu börnin í skólanum um að þau myndu sinna brunaeftirliti í vetur. Í því felst m.a. að halda ruslasöfnun í lágmarki og að neyðarljós séu logandi.
Við erum afar stolt af börnunum okkar og voru þau til fyrirmyndar, hlustuðu af athygli og voru kurteis í alla staði. Myndir frá heimsókninni í dag má sjá í albúmi elstu barnanna.




Korpukot | Fossaleyni 12 | 112 Reykjavík | Sími 586 1400 | Sími skrifstofu 577 1900