Fróðleikur um bangsadaginn

Skráð þann 26. október 2011 kl. 11:48
Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27. október, afmælisdagur Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Roosvelt var mikill skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á veiðum hafi hann vorkennt litlum, varnarlausum bjarnarhúni og sleppt honum lausum. Washington post birti skopmynd af þessu atviki sem vakti mikla athygli. Búðareigandi einn í Brooklyn, New York varð svo hrifinn af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa og seldi hann sem "Bangsann hans Teddy´s" eða "Teddy´s bear".

Það má segja að þetta hafi verið upphaf af sigurgöngu leikfangabangsans. Nú er þessi leikfangabangsi orðin vinsæll leikfélagi barna um allan heim, og er framleiddur í ýmsum stærðum, litum og gerðum, og er líklega það leikfang sem flestum, bæði ungum og öldnum, þykir hvað vænst um.

Upplýsingar fengnar af netinu.




Korpukot | Fossaleyni 12 | 112 Reykjavík | Sími 586 1400 | Sími skrifstofu 577 1900