Listasýning í tilefni 10 ára afmælis Korpukots

Skráð þann 15. nóvember 2011 kl. 19:40

Föstudaginn 18. nóvember fagnar Korpukot 10 ára afmæli sínu.
Af því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag og halda afmælisveislu.

Pínar í eldhúsinu ætlar að baka langa köku sem minnir okkur á ána Korpu sem rennur hér í nágrenninu og eldri börn leikskólans þekkja, en leikskólinn okkar dregur nafn sitt af henni. Börnin eru jafnframt búin að útbúa skraut á afmæliskökuna sem við ætlum svo að gæða okkur á í  kaffinu við sameiginlegt langborð sem nær enda á milli í skólanum okkar.

Að því loknu eða kl. 15 ætlum við að hafa opið hús þar sem við bjóðum ykkur foreldra velkomin til okkar á listasýningu.
Þar verða verk barnanna frá listavikunni og haustinu  til sýnis og kórinn okkar flytur nokkur lög kl. 15:30

Hlökkum til að sjá ykkur.
Börn og starfsfólk í Korpukoti.





Korpukot | Fossaleyni 12 | 112 Reykjavík | Sími 586 1400 | Sími skrifstofu 577 1900