Skemmtilegt afmæli !
Skráð þann 21. nóvember 2011 kl. 10:58
Afmælisdagur leikskólans var mjög skemmtilegur. Þegar börnin komu í leikskólann sinn á afmælisdaginn var búið að skreyta hann með fallegum listaverkum og blöðrum. Boðið var upp á ávexti í upphafi dags, áður en morgunmatur var snæddur.
Börnin á Fagrakoti sáu um að leggja á afmælisborðið sem náði enda á milli í skólanum okkar. Kakan langa sem minnti okkur á ána Korpu var vel skreytt með fiskum sem börnin voru búin að útbúa og ekki spillti fyrir að hún smakkaðist líka mjög vel.
Við vonum að allir hafi notið ljúfra tóna frá söngfuglunum okkar í kórnum sem Hófý stjórnar með glæsibrag og gleði og að sjálfsögðu allra fallegu listaverkanna sem voru til sýnis um skólann.
Við vekjum athygli á að myndir eru komnar inn á síðuna. Smellið á myndir hér til hliðar.
Korpukot | Fossaleyni 12 | 112 Reykjavík | Sími 586 1400 | Sími skrifstofu 577 1900
