Nýárskveðja
Skráð þann 2. janúar 2012 kl. 10:15
Við starfsfólk leikskólans Korpukots sendum nemendum, foreldrum og öðrum samstarfsaðilum þakkir fyrir gott samstarf á liðnu ári og óskir um farsæld á því nýja. Árið 2011 hefur með sönnu verið gott ár í Korpukoti. Á hverjum degi bætist við steinar í hleðsluna okkar, stórir eða smáir, allt eftir atvikum. Það er von okkar að við komum öllum steinunum haganlega fyrir svo þeir standi lengi og verði börnunum gott og farsælt veganesti út í lífið.
Korpukot | Fossaleyni 12 | 112 Reykjavík | Sími 586 1400 | Sími skrifstofu 577 1900
