Foreldrafélag
Foreldrafélag Korpukots
Tilgangur foreldrafélagsins er að virkja foreldra til að taka frekari þátt í leikskólastarfinu með ýmsum uppákomum og viðburðum sem gefa foreldrum, börnum og starfsfólki tækifæri til að kynnast betur innbyrðis.
Stjórn foreldrafélags Korpukots
Formaður: Guðrún Marta Ásgrímsdóttir, móðir Hrafnhildar Valdísar - Bjartakot
Gjaldkeri: Hafdís Bjarnadóttir, móðir Emmu Lilju og Söru Kolbrúnar - Sunnukot
Ritari/umsjón með heimasíðu: Tanja Weselínovic, móðir Alexanders - Bjartakot
Meðstjórnendur: Valgerður Sigurðardóttir, móðir Sólborgar - Sunnukot
Tengiliður leikskóla: Ragnheiður Jónsdóttir - Þroskaþjálfi
Netfang foreldrafélagsins er foreldrafelag@korpukot.is Við viljum eindregið hvetja foreldra/forráðamenn til að senda okkur póst með ábendingum um skemmtilega viðburði sem foreldrafelagið gæti staðið að, ábendingum og spurningum.
Félagsgjald er 4000 kr og er það innheimt í tvennu lagi - 2000 krónur í senn.
Veittur er systkinaafsláttur - 50% fyrir annað barnið (þriðja, o.s.frv.).
Lög foreldrafélags Korpukots
1 gr. Félagið heitir Foreldrafélag Korpukots
2. gr. Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.
3. gr. Tilgangur félagsins er að efla tengsl foreldra/forráðamanna innbyrðis svo og foreldra/forráðamanna og starfsfólks. Stuðlað verði að sem bestri samvinnu á milli þessara aðila til að tryggja sem best velferð barna á Korpukoti.
4. gr. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að :
Virkja foreldra til að taka frekari þátt í leikskólastarfinu með ýmsum uppákomum og viðburðum sem gefa foreldrum, börnum og starfsfólki tækifæri til að kynnast betur innbyrðis.
5. gr. Stofnfélagar eru:
Erna Björg Smáradóttir
Berglind Hreiðarsdóttirr
Sigrún Huld Auðunsdóttir
Gyða Einarsdóttir
Þórdís Hermannsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir (tengiliður við leikskóla)
6. gr. Félagsmenn eru allir foreldrar/forráðamenn barna á leikskólanum Korpukoti.
7.gr. Stjórn félagsins skal skipuð 5-8 fulltrúum foreldra /forráðamanna og 1 fulltrúa frá starfsfólki. Stjórnin kýs síðan úr röðum foreldra /forráðamanna formann, gjaldkera og ritara. Tilnefna skal manneskju til að sjá um heimasíðu foreldrafélagsins og sér sá aðili um umsjón tölvupósts sem berst til félagsins. Formaður ber ábyrgð á starfsemi félagsins.
8. gr. Aðalfundur skal haldinn í janúar ár hvert og skal hann boðaður með minnst viku fyrirvara.
Dagskrá:
1. skýrsla stjórnar
2. lagabreytingar
3. ný stjórn kosin
4. ákvörðun um félagsgjald
5. önnur mál.
7. gr. Lögum félagsins er aðeins hægt að breyta á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi 5. desember 2007
